Indverska prinsessan
Myndir...
09.09.2006 13:45:44 / GÍGJA

Nýtt blogg

Er komín með nýtt blogg.

Slóðin er

http://gigjaben.bloggar.is/


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 23:08:11 / GÍGJA

Pistill frá Indlandsfaranum....

Loksisns, loksins...

Þá er komið að því, mun leggja af stað út á leifstöð um 5 leytið í nótt... Eitt smá tíma þar að keðjureykja og kaupa myndavel frá gellunum ( Æ Love U) Síðan bara flug hálf átta komin til London hálf 12 þá tekur við önnur lota af keðjureykingum og dútli á Heathrow í cirka 5 tíma og svo bara sweet home India... ;) Verð komin þangað um hálf 7 leytið.. Reyklaus og sæl eftir langt ferðalag...

Læt vita af mér þegar "heim" er komið...

Sakna ykkar strax!

Gígja 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 01:22:27 / GÍGJA

Konan kjaftar ekki í pjásunni...

Ohh, er hætt að þola það þegar menn skrifa endalausa þvælu á þessi anskotans blogg og það kemur ekki inn... Er að verða verulega pirruð á þessu!!! Venjulega myndi ég loka tölvunni og sleppa að skrifa einhverja þvælu upp á nýtt, en þar sem ég er að fara í próf á morgun og nenni engan veginn að halda áfram að læra þá verð ég að hafa einhverja afsökun fyrir lestrarleyinu... ;)

 

 

 

Ferðinni er haldið í borg óttans um helgina. Það á nebbla að skella sér í smá afmælis “gettogether” á Glaumbar á laugardaginn í tilefni þess að hún Lóa er orðin lögleg til áfengiskaupa og efa ég ekki að hún muni eignast marga 15 ára vini á næstunni ;) En svo við höldum nú áfram þá á sem sagt að detta í það í vikunni og samkvæmt Vikunni (tímaritinu) þá á happadagurinn minn að vera 13. maí þannig það ætti að vera frekar öruggt að ég eigi fyrir taxa um nóttinu... Maður á ekki að þurfa hringja í systur sína hverja helgi með gervitárin í augunum og ætlast til að hún splæsi öllu...

 

 

 

Síðan eru það aðrar og enn stærri fréttir, Gígjan er örugglega að fara skella sér til Indlands í september og er planið að búa þar fram að jólum.. Er orðin alltof spennt, verð að fara pumpa mig niður því annars mun ég ekki getað beðið í 3 og ½ mánuð...

 

 

Annars varð það ekki meira sem ég vildi koma á framfæri, ætti að fara halda áfram við lærdóminn... Kveð að sinni

 

Sannleikurinn er sár....

 

 

 

 

 

 

... og hann snýst ekki í hringi..!

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 16:37:02 / GÍGJA

Nýjar myndir...

Búin að setja inn myndir.

Ekkert að frétta.

Þarf stærri kvóta.

Kasta fleiri netum.

Veiði ekkert.

Ættti næst að fara út með veiðihár.

That's an idea.

Later!


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 23:39:51 / GÍGJA

Loksins...

... segja kannski sumir en aðrir ekki.... En alla veganna þá er LOKSINS komin ein færsla frá mínum...

Ætla samt bara að hafa hana stutta, það eru komnar nokkuð margar nýjar myndir á síðuna mina, endilega chekkið á þeim...

Meira var það ekki ADIOS!!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 22:52:25 / GÍGJA

Tíminn líður hratt á Gervihnattaöld...

Enn ein helgin búin, enn ein vikan að byrja og það er skelfilega mikið farið að styttast í páskafrí...Segji nú ekki skelfilega frekar svona æðislegavvv

Minns er að fara skella sér eina ferðina enn til Reykjavíkur og hlakkar mér óstjórnlega mikið til... Það verður sko slett ærlega úr klaufunum (þó ég geri það nú hverja helgi)

Helgin var svona skítsæmó, það var skellt sér á Kaffihúsakveld og Harmónikkuball á Föstudeginum en var það alls ekkert til að hrópa Húrra fyrir... Komst samt að því að ég kann ekkert að dansa á harmónikkuballi... Sama þó ég hef séð Dirty Dancing 50000000000 sinnum þá hef ég ekkert lært... :(

Ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum af þessum endalausu skriftum mínum um samasem ekki neitt þannig ég kveð að sinni...


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 01:09:03 / GÍGJA

Dansað á rósum...

Jamm það var sko dansað á rósum um helgina, og bara helv gaman... Það er ekki um hverja helgi sem maður skemmtir sér á djamminu á Hornafirði... En það tókst í þetta sinn!!

Skólinn alveg að drepa mig, ekki beint námið heldur bara að mæta, er ekki með glæsilegustu mætingarprósentu skal ég segja ykkur svona spurning hvort marr eigi ekki bara að fá sér P í öllu á næstu önn... hmmm?

Meira verður það ekki


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 22:30:13 / GÍGJA

Hver man ekki eftir...

 Hver man ekki eftir því í gömlu góðu dagana þegar marr var alltaf að detta í það, hlaupa undan löggunni og skríða út um herbergisgluggan á næturnar..

Hver man ekki eftir því þegar Dóra sæta var kölluð "LITLA STELPAN MEÐ STÓRA BJÓRINN" þannig er nefnilega mál með vexti að ég hitti hana um helgina með vini sínum Kalla ACTION... Þau voru á pöbbarölti á klaustri svona rétt áður en hún færi í flugvélina til Danmerkurg og náði ég einni mjög svo skemmtilegri mynd af þeim skötuhjúum sem ég ætla að skella hér inn....

LOL.... endilega commentið á þetta!!!


» 14 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 01:15:48 / GÍGJA

Auglýsi eftir góðu sjónvarpsefni...

Stundum fatta ég alls ekkert i þessum breynglaða heimi, þannig er ju mál með vexti að ég ákvað að taka bara eitt djamm um helgina og hef valið morgundaginn þar sem ég er ju að fara á árshátið með fríu alkahóli (að ég vona) og alles... En síðan ég kom heim ur vinnu hef ég ekki gert neitt annað en að fletta rásum á sjónvarpinu fram og til baka að leyt að einhverju skemmtilegu... Það er ekkert í þessu blessaða apparati og ég bæði með kapalinn og stöð 2.... Það er föstudagskveld "for gods sakes" skil bara ekkert í þessu!

En eins og ég nefndi hér að framan þá er ég að fara á árshátíð á morgun og er stefnan tekin á klaustur, þar munum við leggja undir okkur bæinn og djamma og djúsa langt fram á rauða nótt... Læt vita af mér fljótlega eftir að ég kem heim, þar að segja ef ég finn mér ekki einhvern klaustursbúa og sest þar að... ;)

I'm Audi ;)

----Myndir frá síðustu helgi eru komnar inn----


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 00:06:41 / GÍGJA

Home sweet home...

Jæja þá er enn ein bæjarferðin afstaðin og var hún bra helv fín... Þar var mikið drukkið og djammað og alltaf gaman að eyðan qualaty time með aðfluttu kvennsunum... Þið eruð æðislegar!!! 

Það er samt farið að verða vandamál hjá mér að ég kemst aldrei í búðir út af þynnku eða öðrum vandamálum... Eins og að ná ekki í Lóu þegar hun er með allt draslið mitt eða því að enginn nennir að kom með manni... Þannig ég ætla næst að sleppa því að gera mig tilbúna með þér Lóa min og ég ætla að fara ein í kringluna ef ég þarf þess... Þetta þýðir ekki lengur...

Það var ekkert vesen á mér í þetta skifti var bara svaka still og góð og enginn hringði í Beggu þannig þannig þá hlýt ég að hafa verið stillt...

En nu er Alla farin til Danmerkur og brátt mun Dóra fara lika og ætla ég að vona að þær skemmti sér konunglega og vildi ég óska að ég gæti farið með þeim... En marr getur víst ekki gert allt saman...

Látum þetta nægja í bili, mun dunda mér við það að setja inn myndir þegar ég nenni...


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 13:27:45 / GÍGJA

TOUGH TOUGH TOUGH...

Var að vafra á netinu og tók eftir því að einhver gaur hafði þýtt Silvíu Nætur lagið og ég verð bara að segja að það er nett cool... Check it out!!!

Hey you, disgustingly cool, I am talking to you
I am Silvía Night, shining in the light, I know you feel me too
Born in reykjavík, I am very chic, not some out of town-freak
I ll beat the rest, I m the fucking best, there s no chance for the others

So root for me Iceland, I m God s gift to you,
I am Silvía Night and you love what I do
Eurovision nation s gonna flip when they see
I ll kick all their asses, it s all about me!

TOUGH TOUGH TOUGH

My song, way above the rest, not some 90s reject
It s the best, ok, it is very gay, I m coming here to stay
All the bitchy queens have two extra chins, but I m a virgin
You all love me, you all want me (yoouuuu), but I m so way above you

So root for me Iceland, I m God s gift to you,
I am Silvía Night and you love what I do
Eurovision nation s gonna flip when they see
I ll kick all their asses, it s all about me!

YEAH YEAH YEAH


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 13:28:44 / GÍGJA

Súi Sædal... ;)

Jamm, ég er gjörsamlega komin með yfir haus af heimaverkefnum og þess skonar drasli enda ekki búin að vera sú duglegasta að mæta í skólann og vinna heima... Þetta gengur bara alls ekki mikið lengur því þá á ég eftir að drukkna...

Annars er ekkert (og þá meina ég ekkert) að frétta af mér, eyði mestum frítíma mínum í það að vera alveg að fara að læra sem þýðir að mestu að hanga á Leikjanet og horfa á sjónvarpið... Annars er eg búin að vera helv dugleg að hrista á mér bossan þar sem ég stefni á að missa nokkuð morg kíló fyrir sumarið...  Sjáum til hvernig það fer...

Að lokum vil ég benda ykkur á að kíkja í frasa á síðuna hennar Guðrúnar, ef þíð fattið ekki Súi Sædal djókið...


» 30 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 09:00:55 / GÍGJA

Krossapróf

(x) reykt sígarettu (nokkrar á dag)
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( x) stolið bíl (foreldrabíl á hverjum degi)  
( ) verið ástfangin/n
(  ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(  ) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum (við lille bror, er það ekki tekið með?)

(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum. ( hverja helgi á minum yngri árum)                                                                                              
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki (ætli maður verði ekki að viðurkenna það)
(  ) verið handtekin/n
(  ) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum (minnsta lagi einu sinni í viku, t.d. right now)
(  ) horft á einhvern deyja
(  ) farið til Canada

( ) farið til Mexico                                                                                                 (x) ferðast í flugvél
(  ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi (ekki það besta sem ég hef smakkað)
(  ) farið á sjóskíði                                                                                               
(x) farið á skíði (og helv... góð)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna (jamm og jamm)
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin (ætli það ekki)
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð (jamm með Öllu eftir langan bakstursdag)
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala

(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu                                                                                (x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik (hvernig á maður annars að vinna?)
(x) verið einmanna
(x) sofnað í vinnunni/skólanum (hver hefur ekki sofnað í skólanum)
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni (uppi á sendiferðabíl, skíthrædd með blindfulla hillbillies í næsta trailer)
(x) verið kitluð/kitlaður
(  ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n (er mjög miskilin manneskja)
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi (ljósin voru eitthvað að veltast fyrir mér)                                                                                             
(  ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi (telst það ekki með þegar bakkað er aftan á mann eða þegar maður lendir út af?)
( ) verið með spangir/góm (þarf engar fegrunaraðgerðir)
( ) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni (happens alot when you don't have a boyfriend)
(  ;) borðað líter af ís á einu kvöldi (borða ekki ís)
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu (hálfnakin og blindfull)
(x) fundist þú líta vel út (always)
(  ) verið vitni að glæp.
(  ) efast um að hjartað segði þér rétt til                                                           
(  ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni                                                                      
(x) verið týnd/ur (alltaf á mínum yngri árum)
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn (jamm ætli maður verði ekki að viðurkenna það)
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með trélitum (mig langar að lita)
(x) sungið í kariókí (Cat's meuw, New Orleans... Hit me baby one more time)
(  ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (á alltaf stóra peninga)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki (never again)
(x) hringt símahrekk...
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni (eyjar...)
(x) skrifað bréf til jólasveinsins (til kertasníkis og kerti með)
(x ) verið kysst/ur undir mistilteini (svona nokkurn veginn)
(  ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(  ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý..
(  ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst (never)
(  ) farið í fallhlífastökk...                                                                                       (  ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 13:49:51 / GÍGJA

Helgin

Já helgin var skítsæmileg... skelllti mér í bæinn og var planið að versla og versla og svo kannske detta aðeins í það... En varð í staðinn hangs hangs dottið í það og sofið... Ekki alveg nou gott en fínt var það þó... Alltaf gaman að hitta stelpurnar og losna aðeins úr firðinum....

Á laugardeginum var farið niður í bæ og fengið sér í nokkur glös sem er ekki frásögufærandi nema það að ég hitti manneskju sem ég kannast við... Ég gef mig á tal við hann haldandi að ég sé kruttleg og fyndinn en svo var víst ekki... Daginn eftir kemst ég að því að þessi sama manneskja hafi hringt í systur mína áhyggjufullur haldandi að ég sé í einhverri bévítans vitlleysu...

Held að marr þurfi aðeins að bæta sig í daðrinu eða hætta að drekka... Því ekki var það ætlunin að spila sig út sem crazy gellu á sýrutrippi en svo var það víst... ;)

Meira er það ekki að sinni...


» 14 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 17:29:04 / GÍGJA

Draumar...

Til hvers eru þessir draumar... Held að ég sé að verða geðveik ef marka má drauminn sem mér dreymdi í dag í gatinu mínu.... Ætla ekki að segja frá í smáatriðum þar sem ég vil halda því fyrir mig en í grófum dráttum þá var hann um 11-11 poka fulla af dópi, snjóhús, og fólk sem ég hef aðeins einu sinni eða aldrei talað við í druslulegum fötum eða dautt inni í frystiskáp...

Jamm frystiskáp.... Segji ekki meir! 


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9